Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Morfís á föstudaginn 24. nóv

23. nóvember 2006 klukkan 18:16
Morfís! Morfís! Morfís!

Nú er komið að því.....Stóra stundin er runnin upp! Fyrsta Morfís keppnin verður haldin á föstudaginn 24. nóvember í Kvosinni undir brjáluðum undirtektum stuðningsmanna. Þetta er fyrsti leikurinn og það sem meira er fyrsti heimaleikurinn. Umræðuefnið er Satan og við erum bersýnilega Á MÓTI! Allir að mæta og styðja okkar lið til sigurs.
Mæting kl 19:20 og hitum upp stemninguna

Ottó í berjamó...
Guðni í berjamó...
Birna í berjamó...
Valur í berjamó...

Skólafélagið Huginn
3 athugasemdir

Gömlu dansar.....dansi dansi

22. nóvember 2006 klukkan 16:28
Gömlu dansar í Kvosinni í dag 22.nóvember kl 15:30....4.bekkingar endilega að mæta og rifja upp danssporin fyrir árshátíðina!

Árshátíðin er í fullum undirbúningi og þeir sem eru áhugasamir og vilja hjálpa endilega hafa sambandi eða senda okkur póst á huginn@ma.is

Nú er tími til að æfa skólasönginn!

Undir skólans menntamerki
mætlast vinir enn í dag.
Sýnum öll í vilja og verki
vöxt og trú og bræðralag.
Forna dáð er fremd að rækja.
Fagrir draumar rætast enn.
Heill sé þeim sem hingað sækja,
höldum saman Norðanmenn.

Allt skal lúta einum vilja.
Allt skal muna þennan dag.
Allir sem við skólann skilja
skulu syngja þetta lag.
Sýnum öll á sjó og landi
sigurþrek hins vitra manns.
Sýnum það að afl og andi
eigi skóla norðanlands.

Kveðja,

Stjórnin.
Skólafélagið Huginn
Engin athugasemd

Nú fer að koma að því!

21. nóvember 2006 klukkan 14:30
Fyrsta viðureign Morfísliðsins okkar nálgast óðfluga. Við eigum rétt á heimaleik og þrátt fyrir væl, tuð og frekju Verzlinga tökum við á móti þeim þann 24. nóvember. Þeim fannst eitthvað heldur langt að keyra til Akureyrar, svo eru prófin auðvitað að nálgast hjá þeim... (En það vissi nú liðið þegar það samdi um dagsetninguna). Við vitum öll hvað það er sjaldgæft að við fáum tækifæri á að vera heima og taka á móti öðrum skólum og nýtum því að sjálfsögðu þau tækifæri sem gefast. Við erum varla búin að jafna okkur eftir Gettu betur ferðirnar í fyrra...

Allavega, Morfís liðið okkar er í óða önn að undirbúa sig og við höfum fulla trú á að það standi sig frábærlega. Við munum að sjálfsögðu hvetja krakkana til dáða og fjölmenna í Kvosina, stríðsmáluð og með klöppin á hreinu. Verzló ætlaði að fara fram á að keppnin færi fram í kyrrþey, kæmist ekki ákveðinn fjöldi Verzlinga með. Við börðumst gegn þessari tillögu og úrskurðaði Morfísráð að það hefði ekki umboð til þess að ákveða að keppnin færi fram í kyrrþey. Eins gott, hefði verið skítt fyrir Menntskælinga að missa af þessari hörkukeppni vegna þess að Verzlingar ætla að lesa fyrir próf.

Keppnin hefst kl. 20.00 og húsið opnar 19.15. Við ætlum að hita vel upp og því mælumst við til þess að Menntskælingar mæti hálftíma fyrir keppni, minnst, og það verði kominn hiti í húsið áður en Verzlingar mæta og keppni hefst. Stríðsmálning verður á staðnum og nemendur MA verða svartklæddir.

HASTA LA VICTORIA MA!
Skólafélagið Huginn
Engin athugasemd

Stuð

13. nóvember 2006 klukkan 04:03
Stjórnin gerði sér dagamun um á föstudag og fór á fund með Landsbankanum á Greifanum. Eftir hann kíktum við svo aðeins til Rönnu og fórum svo saman á Borat. Myndin var náttúrulega algjör snilld og skemmtum við okkur konunglega.

Seinasta fimmtudag var æfingakeppni í Morfís milli MA og VMA. Fór hún vel fram og var Ottó valinn ræðumaður kvöldsins!

Það er nóg að gera og allir á fullu í árshátíðarundirbúningi. Nú er líka búið að ákveða að viku eftir árshátíð, 8. desember verða tónleikar í Kvosinni. Hljómsveitin Fræ og tónlistarkonan Lay Low munu koma og spila!

Þó að það sé nóg í deiglunni erum við samt að safna í hugmyndabankann og ætlum að reyna að fá ykkar hugmyndir.

Er eitthvað sem þið viljið sjá gerast í félagslífinu í vetur? Svarið í kommentakerfinu :)

Skólafélagið Huginn
2 athugasemdir

Hönnunarkeppni og skreytingarnefnd

31. október 2006 klukkan 08:01
Ert þú hönnuður eða föndrari í þér?

Stjórnin ætlar að halda hönnunarkeppni fyrir árshátíðina í ár. Keppt verður um hver hannar flottustu árshátíðarauglýsinguna og miðana. Vegleg verðlaun verða í boði, m.a. frítt á árshátíðina, auk þess sem það er mikill heiður að vinna keppnina!

Svo er skreytinganefndin að fara að byrja á fullu og allir föndrarar að taka þátt! Fyrsti fundurinn þar sem við byrjum að teikna og mála verður haldin á miðvikudaginn kl 18:00 í H9! Partýið er opið öllum þannig þú þarft ekkert að vera brálaður teiknari/málari.......Allir velkomnir;)

Á miðvikudaginn koma svo nánari auglýsingar um árshátíðina!

Bíðið spennt
kv Stjórnin

Skólafélagið Huginn
Engin athugasemd

SvartHvítur Dagur!

25. október 2006 klukkan 15:36
Á fimmtudaginn 26.okt (á morgun) verður SvartHvítur dagur og ALLIR að mæta í svörtu og hvítu á morgun!!!!!!!! Ekki bara svörtu, ekki bara hvítu HELDUR svörtu OG hvítu! Glaðningur og skemmtilegt í boði stjórnarinnar og þeir sem mæta ekki í svörtu og hvítu fer í skammakrókinn!!

Við minnur einnig á KvikMA kvöldvöku á morgun kl 20:00 þar sem sýnd verður stórmyndin "Oldboy"

ALLIR AÐ MÆTA Í SVÖRTU OG HVÍTU!!!!!!!

KV. Stjórnin
Skólafélagið Huginn
1 athugasemd

Stjórnin segir..........

18. október 2006 klukkan 17:41
Allt að gerast, allt að ske!



Fimmtudagurinn 19.okt verður magnaður!







LMA spunakvöldvaka og Gói vinur okkar mætir á svæðið! Gettu betur liðið mætir einnig hresst til leiks í heitum æsing við stjórnarmeðlimi. Sjoppan verður opin í hléi! Þetta verður bara endalaus hlátur og gleði þannig engin má missa af þessu og mun kvöldvakan hefjast á slaginu 20:30.







Allir að mæta, ókeypis inn! ;)







kv Stjórnin sem dansar
Skólafélagið Huginn
Engin athugasemd

Vúhú

14. október 2006 klukkan 22:21
Fyrsti söngsalurinn var á fimmtudaginn! Jón Már gaf okkur sal eftir æsing á gamla gangi og við fylktumst í Kvosina. Axel Ingi, nýi konsertmeistarinn stóð sig eins og hetja! Boðið var upp á kakó og kex eftir sönginn, ekki amalegt það. Nú er bara að bíða eftir næsta söngsal... spurning hvort að það verði eitthvað þema þá? Þið megið koma með uppástungur í kommentakerfið!

Stjórnin skellti sér í myndatöku til hins fjallmyndarlega og hæfileikaríka Arnars Ómarssonar. Það ríkti mikil gleði og erótíkin var í hávegum höfð (allavega milli Magga og Rönnu). Spurning hvort maður skelli myndunum inn?

Morfís inntökukeppnin var á miðvikudaginn. Þar kepptu átta manns um sæti í fjögurra manna Morfís lið MA 2006-2007. Ottó, Birna, Guðni og Valur unnu, og við óskum þeim innilega til hamingju með sigurinn! Til þess að setja smá pressu á hópinn sögðum við þeim, rétt eftir að þau unnu, að þau væru að fara að keppa við stjórnina í ræðulist kvöldið eftir. Valið var umræðuefnið "tíska" og þau voru á móti tískunni, stjórnin að sjálfsögðu meðfylgjandi. Klædd í diesel, flegna boli og glimmer stigum við Ranna og Maggi á stokk og tókum morfísliðið Eygló í karphúsið með skotheldum rökum - það er gott að vera töff. Haha. Ræðuliðið stóð sig frábærlega og er ótrúlegt hvað þau gátu lamið saman flottar ræður með svo stuttum fyrirvara! Það verður stuð að fylgjast með þeim í vetur :)

Sjáumst, Kristín Helga.

Skólafélagið Huginn
Engin athugasemd

Morfís og Kvöldvaka

11. október 2006 klukkan 12:08
Jæja krakkar nú er komið að því....

Á fimmtudaginn næstkomandi (12.okt) verður haldin fyrsta kvöldvaka haustsins 2006! Gleðin byrjar á slaginu 20:00! Farið verður í allskonar leiki og múgæsing eins og keppni milli bekkja og þá er nú eins gott að halda uppi heiðrinum;) Nemandi mánaðarinns verður tilkynntur og hreppir hann glæsileg verðlaun ásamt auðvitað gleðinni að vera kosinn:þ.......Fyndnasti maður (eða kona) Íslands (Bryndís Ásmundsdóttir) ætlar að vera með brjálað uppistand sem enginn má missa af (annars ertu bjáni).....Svo verða auðvitað Pizzur og gos eins og þú getur í þig látið og glæsileg verðlaun í boði þannig þú bara getur ekki látið þetta fram hjá þér fara.....Og allt þetta fyrir aðeins 200kr fyrir Huginsfélaga (500kr fyrir aðra) pælið í því!!!!!!

Viljum einnig vekja athygli á Morfískvöldvökunni í kvöld (miðvikudag 11.okt) þar sem hinir hörðustu ræðumenn skólanns berjast í hörkukeppni um sæti í Morfísliði MA! Endurvekjum Morfís því það er töff!!!!!


Sjáumst í kvöld ooogg á fimmtudaginn......;)

kv Stjórnin



Skólafélagið Huginn
Engin athugasemd

Allt að fara í gang...

04. október 2006 klukkan 04:45
Jæja, nú er félagslífið að púslast saman og allt að fara í gang!

Busunin tókst vel og þó það sé ekki þverfótað fyrir nýnemum í Kvosinni eru þetta hin vænstu grey. Nýnemasundið var fyrr í kvöld, þar sem margir fóru á kostum í bombukeppnum, rennibrautatímatöku, köfun og hanaslag.

Félagakynningin var seinasta fimmtudag, og það eru í kringum þrjátíu félög sem hafa sótt um að vera undirfélög Hugins þetta skólaár. Við fögnum að sjálfsögðu þessum fjölda félaga, og vonum að starfsemi þeirra verði sem öflugust og fjölbreyttust! Það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Bráðum fara óvæntar uppákomur að aukast í skólanum, kvöldvaka er í nánd, Morfís-inntökukeppni verður á þriðjudaginn og það er margt spennandi í gangi! Formenn félaga funda með stjórninni á fimmtudaginn, þar verða veitingar og fjör, svo það er mikilvægt að allir mæti á fundinn.

Slúður af stjórninni: Spyrjið okkur bara á förnum vegi, ef einhverjar eru spurningarnar!
Skólafélagið Huginn
1 athugasemd